crazy people
14.03.2006 19:32:16 / wclaugar

Fyrirtækjamót í frjálsum – Alucup 2006

ATH!!
STARFSFÓLK WORLDCLASS, LAUGAR KAFFI, LAUGAR SPA, KLIPPARINN Í LAUGUM OG AÐRIR
STARFSMENN HÚSSINS

Fyrirtækjamót í frjálsum – Alucup 2006

Þann 1.apríl nk verur haldið skemmtilegt mót í frjálsum íþróttum fyrir
fyrirtæki og stofnanir.
Frjálsíþróttadeild ÍR stendur fyrir þessu móti sem haldið verður í nýju
frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum.

Við ætlum sko sannarlega að taka þátt í þessu móti og sýna hvað í okkur býr og
við viljum að sjálfsögðu fá sem flesta í lið með okkur.

keppt verður í:

- boðhlaupi

(5 x 60m) og þarf liðsskipan að vera 3 karlar og 2 konur eða 3 konur og 2 karlar
- langstökki
- kúluvarpi
- 200m hlaupi
- 1500m hlaupi
- 3000m hlaupi

Við ráðum hve fjölmenna sveit við sendum nema í boðhlaupið en stefnt er að
jafnri þátttöku karla og kvenna á þessu móti. Þátttökugjald á lið verður 25.000
og mun World Class að sjálfsögðu greiða það fyrir sitt fólk. Þátttökugjaldinu
fylgir aðgangur bæði að veitingum og skemmtun fyrir fjölskyldur keppenda og
samstarfsmenn. Mót þetta er fjölskylduvænt og gert er ráð fyrir sérstakri
dagskrá fyrir börnin sem koma með foreldrum sínum. Á boðstólnum verða
heilsudrykkir og hollt meðlæti sem ekki þarf að greiða fyrir og tónlistarmenn
skemmta þátttakendum.

Til þess að skapa skemmtilega stemmingu mun hljósveitin South River Band hefja
tónlistarflutning kl 13:30 en keppnin sjálf hefst kl 14. Gert er ráð fyrir að
mótinu verði lokið kl 16.

Skráning hafin í afgreiðslu Worldclass, sýnum öðrum fyrirtækjum nú í eitt
skipti fyrir öll hvernig maður vinnur sem eitt stórt lið J

Þeir sem sjá sér ekki fært að taka þátt eru að sjálfsögðu hvattir til þess að
koma og styðja sitt fólk!!!

starsmannaráð:

Kalli: Afgreiðsla

Björk: Laugar spa

Hrefna: Laugar Kaffi

Konni f. hönd einkaþjálfara

Hollý f. hönd ræstingaliðs

Jón Arnar f. hönd kennara

Linda: Afgreiðsla


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 16:46:05 / séra karl

Árshátíð í Köben 2006!!

Ú Yeah, þá er allt komið á hreint, allt komið á innra netið og strax eftir helgi koma upp auglýsingar um allt hús, en allavega kíkið á innra netið ef þið viljið sjá allt um árshátíðina :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 17:17:29 / séra karl

Paintball!!!

Það verða allir að koma með í paintball föstudagskvöldið 24 febrúar klukkan 20, skráningarblöðin eru komin út um allt svo nú er að um að gera að mæta, starfsmannaráðið er að reyna að hafa eitthvað svona mánaðarlega en þá verða líka allir að vera duglegir að mæta:) ..þetta er by the way líklega stysta blogg mitt frá upphafi, er farinn að afgreiða, vildi bara minna á þetta


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 10:34:43 / sara lind

ÁRSHÁTÍÐIN!!!??

 

Jæja gott fólk!! ;) Það er svo langt síðan ég hef látið heyra í mér hérna að ég var búin að gleyma aðgangsorðinu mínu og svo strokaðist allt út hjá mér í þokkabót!! AARRGGG!! :evil:

Vá strax komin febrúar og heldur betur búið að fækka um manninn hérna í Spönginni..fólk eitthvað að gefast upp hmmm :lol:

En já snúum okkur að máli málanna í dag...Árshátíð World Class..the famous and beautiful people..;)

Finnst ég ekki vera búin að fá nógu skýr svör í sambandi við þessa árshátíð, þar sem það eru aldrei sömu svörin. okey þannig ég ákvað að koma með smá flóð hérna... :haha:

Hvernær verður árshátíðin,hvernær verður farið og komið tilbaka-föstudagskvöld-sunnudagskvöld eða?

Þurfum við að borga og hversu mikið þá og hvað þurfa makar að borga?

Hvað er innifalið í þessum pakka? Veit einhver hvað hótelið heitir svo það sé hægt að spæja aðstæðurnar?

Er komin einhver skráning fyrir þetta? og svo að lokum hverjir ætla að fara??? Látið heyra í ykkur elskurnar mínar...:D:D

Bíð spennt... Kveðjur úr Grafavoginum Sara Lind 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 17:23:22 / linda

Hittingur á næstunni???????????????????????????????????????

Sælt veri fólkið og gleðilegt nýtt fabilous ár !! :lol: !!

Jæja hvað er uppp? neinei við vorum að spá (sko mín og Sandran) hvort staffið í WC ætti ekki að byrja nýtt ár með trompi og hittast þann 28. jan næstkomandi og gera    e-h skemmtilegt, eins og t.d. að fara í keilu saman 8|:!::!:

Hvað segiði?? eruð þið ekki mega- góð í keilu....... neinei enginn skilyrði eru um góða keilukunnátu.... (hóst sandra er snillingur hóst hóst í keilu!!!)

Endilega kommentið elsku fólk þannig að við getum gert e-h ráðstafanir... allavegna svo þið vitið þá ætlum við Sandra að fara hvort sem að þið letingjarnir komist ekki!! því við ROKKUM FEITAST 8)

Verum í bandi / kaðli (ömurlegt ég veit en Sandra vildi að ég setti þetta með!)

Over and out.

Linda og Sandra


» 16 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 19:41:26 / bjorkin

afmælisbarn dagsins

Skaust inn á innra netið áðan.... tók eftir því að Sara Lind okkar á afmæli í dag!!!

Til hamingju með afmælið Sara!!!!!! :D knús og kossar


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 19:48:23 / sandra

Sumó bústado el senjero

GLEÐILEGT NÝTT ÁR FÓLK OG TAKK FYRIR ALLT ÞAÐ LIÐNA

Jæja djammið á síðasta ári var nú upp og ofan, margt fróðlegt gerðist þar og þetta ár verður enn betra, strax eru komnar hugmyndir um það fyrsta, sumarbústaðaferð afgreiðslunnar!!??

Spurningin er, hverjir myndu hafa áhuga á að kíkja með???? kommentið þá endilega, við erum að skoða bústaði eins og er, hugmyndin er að hafa þetta í lok þessa mánaðar eða í byrjun þess næsta..


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 15:46:15 / bjorkin

Gleðilegt nýtt ár

Kæru samstarfsmenn!!!

Gleðilegt nýtt ár

og takk fyrir frábærar stundir á árinu sem er liðið og megi þær vera ennþá fleiri á komandi ári!

þó víða væri leitað þá væri ekki hægt að finna jafn skemmtilega samstarfsfélaga,  (smá væmni í byrjun árs) ;) skál fyrir því


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 21:35:56 / sara lind

ÁRSLOK 2005

Já kæru samstarfsfélagar..það líður að lokum 2005 og nýju ári 2006 :P Þetta líður ekkert smá hratt og er það sagt að því eldri sem maður verður því hraðara líður það..eða hvað?? :lol:

Ég er annars búin að hafa það bara annsi huggulegt yfir hátíðirnar, í fríi til 2.janúar, borða góðan mat, liggja upp í rúmi og horfa á video hægri vinstri..eins og það gerist best...engar áhyggjur og afslöppun! :haha: Eða já öllum áhyggjum og öðrum leiðinlegum fylgihlutum verður beðið til betri tíma..hehe á nýju ári...byrjar brjálæðið...vinnan og ræktin ..eins og hjá örugglega flestum..en þó verða engin svokölluð nýársheit strengt enda eitthvað sem ég hef aldrei tekið upp á að gera...vil ekki valda sjálfri mér vonbrigðum haha :haha:

En hvað er planið á morgun, hvað ætliði að gera, fara á ball, partý í bæinn?? What´s the plan...var að spá í balli...svona til tilbreytingar þar sem ég hef nú aldrei farið á almennilegt ball hérna í borginni:) hmmm...látið heyra í ykkur :)

Vona að þið séuð öll búin að njóta jólanna vel og hafa það sem allra best...

áramótakveðjur

Sara Lind ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 07:56:24 / hrönn

Jóla Hvað!!!

Gleðileg jól

er mætt í jólagleðina hérna í wc á aðfangadag að taka á móti hlaupandi jólasveinum:D

Hafið það nú gott í dag .....


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 11:04:12 / séra karl

Við sem dýr

Það er alveg einstaklega lítið að gera hérna í vinnunni og ég og Lára sitjum bara hérna að klóra mér í pungnum.. Þannig að ég ætla að skemmta sjálfum mér og ykkur og búa til dýraútgáfu af öllu staffinu, semsagt ef allir í afgreiðslunni væru dýr, þetta er bara í gamni gert þannig að ekki drepa mig ef þið eruð ósátt...

Ætla að byrja á sjálfum mér, þetta er án vafa ég:

Björk

Ellen

Snædís

Sandra

Hrönn

Lára

Linda

Ástrós

Unnur

Sara

Eva Dögg

Mangó

Arna Rut

..Já gott fólk, er búinn að missa mig held ég, vona að þið eigið góðar stundir um jólin. Gleðileg jól :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 14:27:01 / séra karl

Well well well the day after...

Nei góðan daginn og takk fyrir síðast, ég var bara að skríða á fætur og ótrulegt en satt er ég eldhress þrátt fyrir "talsverða" drykkju, ég sit hérna heima að hlusta á what is love og væri alveg til í að kíkja aftur á djammið, skil þetta ekki, ég sem venjulega er mjög þunnur eftir djamm, tek mér 2 og hálfs mánaðar pásu, fer svo á 2 fyllerí þar sem mikill drykkja er og viti menn, vakna eldhress, pant halda svona áfram(7,9,13) ...en já gærkvöldið var virkilega skemmtilegt, stemningin um 8 leytið var svona frekar róleg, jólalög í græjunum og allir bara svona létt að spjalla, svo átti heldur betur eftir að rætast úr þessu og var þetta virkilega skemmtilegt kvöld og margir ansi hressir eins og oft er þegar frítt áfengi er..Svo er það að gera eitthvað svona sniðugt aftur á næstunni, kannski bara næsta laugardag klukkan 6, hvað með að hittast þá.. hei kommon þið sem hugsuðuð þarna ok, þá er aðfangadagur næsta laugardag :D.. en já greinilegt að þetta world class lið kann að skemmta sér. Það voru svo teknar um 50 myndir á vélina mína og mun ég reyna að setja þær inn á allra næstu dögum... Séran biður að heilsa og þið sem eruð einstaklega þunn vonandi að það sé gaman hjá ykkur, nefni engin nöfn en gruna nokkra úr afgreiðslunni ;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

17.12.2005 10:36:35 / sara lind

Jólaglögg World Class

Jæja gott fólk!!! :D Þá er komið að því að sjá hver gerir sig að mesta fíflinu, ælir í blómapotta, kyssir samstarfsfélaga sinn og brillerar í karokí!!! :haha::haha: Já jólaglöggið í kvöld og mín bara loksins að komast í smá fíling...ekki laust við að stelpan sé soldið út undan hérna "ein" í Spönginni!! :$ og ykkar í laugum er sárt saknað!!! 8| En svona er þetta...hmmm

Er fólk ekki að komast í gírinn??? og það verða allir að láta sjá sig...

Sjáumst hress og kát í kvöld í okkar fínasta pússi :D

knús knús Sara Lind


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 01:43:00 / ellen

tími á smá blogg

það styttist og styttist í Liltu jólin sem verða haldin eftir 4 (3) daga! ég er að fara á morgun að kaupa pakka undir tréð! svoldið erfitt að finna e-ð sem hentar bæði kk og kvk! kaupi bara e-ð stelpulegt þá geta kallarnir bara gefið kærustunum eða mömmum pakkan!

prófin eru nuna búin hjá mer! hlakka beint ekki til að fá einkunnirnar! nuna tekur bara við að kaupa jólagjafirnar og jáhhh vinna! ég er ennþá ekki að ná því að ég sé að vinna í 11 tima á þorláksmessu! ég vil vorkunn!

jahh ég var svo góð við Örnu sætu áðan að vinna fyrir hana til lokunar! það var bara mjög fint var að vinna með Lindu elskunni... meðan hun var í slúðrinu hjá stjörnunum þá var ég bara á fullu í vinnu letibykkjan þarna! niiiii vitiðið það var mjög lítið að gera, fólk nennir bara ekki að mæta í ræktina rétt fyrir jól!

Jáhh meðan Linda var að kíkja á Angelinu Jolie ólétta ákváðum við að kíkja á heimasíðu Unnar Birnu eða jáhhh Ungfrú Alheims! og þar voru yfir 3000 heimsóknir í dag! og e-ð um 51000 yfir allt! svo voru alveg um 300 coment bara til hamingju, þú ert falleg, þú ert stolt þjóðar og svo framvegis.....afhverju fáum við ekki svona comment... jæja ég er ógeðslega þreytt en langar bara ekkert að fara að sofa er að bíða eftir að Kæró se búinn í bíó

Bæjó

Ellen


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 07:40:58 / séra karl

Nei var amma þarna

Nú hef ég ekki látið ljós mitt skína hér ansi lengi svo tími til kominn að ég geri það, er búinn að vera ofvirkur í dag og blogga á hin 2 blogginn sem ég er með svo allt er þá þrennt er eins og sagan segir.. ekkert spes sem ég hef að segja í dag hérna, er bara að vinna eins og venjulega og ekki rassagt að gera aldrei þessu vant, ég sit bara og bora í nefið og klóra mér í rassinum á milli þess sem ég syng nokkra vel valda tóna og tek nokkra dansa fyrir viðskiptavinina.. en já með fimmtudaginn, það klikkuðu allir á að koma enda kannski ekki allir sem vissu að þetta væri bara fyrir okkur, við þurfum bara að plata b og l til að halda svona mánaðarlega, Linda þú sérð um að plögga þetta með þinni smeðjulegu ass kissing voice :D .. en já svo eru ekki nema 9 dagar í litlu jólin, ég mun þar hella í mig þannig að þeir sem eru forvitnir að sjá mig fullan í fyrsta sinn getið skemmt ykkur vel þá ;).. ég nenni ekki að segja meira í bili, er farinn að fá mér kaffi enda ansi þreyttur svona í morgunsárið.. Séran biður að heilsa

» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4